Skip to main content
24. apríl 2024

Viðurkenning fyrir fjarkönnunarráðstefnu 2027

Viðurkenning fyrir fjarkönnunarráðstefnu 2027 - á vefsíðu Háskóla Íslands

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, tók við viðurkenningu á ársfundi Meet in Reykjavik á dögunum fyrir að hafa tekist að fá ráðstefnuna „International Geoscience and Remote Sensing Symposium (IGARSS)“ til Reykjavíkur árið 2027. 

Gert er ráð fyrir að 2.500 erlendir vísindamenn og fagfólk á sviði fjarkönnunar frá öllum heimshornum sæki ráðstefnuna sem fram fer í Hörpu og Háskóla Íslands í júlí 2027. Fjarkönnun felst í því að taka stafrænar myndir úr flugvélum, drónum og gervitunglum og vinna úr þeim margs konar upplýsingar um yfirborð jarðar og breytingar á því. Meginþema ráðstefnunnar hverfist um aukinn skilning á og viðbrögð við umhverfisáskorunum á alþjóðavettvangi með aðferðum fjarkönnunar.

Aðalstyrktaraðili IGARSS 2027 er Háskóli Íslands en fleiri innlendar og erlendar stofnanir og fyrirtæki koma að ráðstefnunni, þar á meðal Meet in Reykjavik og KOMUM ráðstefnur. Í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar eru alþjóðlegir sérfræðingar í fjarkönnun undir forystu Jóns Atla, Magnúsar Arnar Úlfarssonar, prófessors í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands, og Gabriele Cavallaro, gestadóstens við skólann.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar og stjórnarformaður Meet in Reykjavík, afhenti Jóni Atla viðurkenninguna á ársfundi Meet in Reykjavík þann 16. apríl. Í ávarpi sínu benti hún á að Jóni Atli væri í hópi fremstu vísindamanna heims á sviði fjarkönnunar og ætti þannig drjúgan þátt í framúrskarandi árangri Háskóla Íslands á því sviði fjarkönnunar en Háskóli Íslands er einn af tíu fremstu háskólum heims á því sviði samkvæmt nýjasta lista Shanghai Rankings yfir bestu háskóla heims. Það væri því ekki ofsögum sagt að hann hefði gegnt lykilhlutverki í að fá ráðstefnuna til Reykjavíkur.  

Jón Atli þakkaði Meet in Reykjavík fyrir aðstoðina í umsóknarferlinu og sagði að þeirra reynsla og framlag hefði gert það að verkum að yfirleitt hefði verið hægt að fara af stað í umsóknarferlið. Einnig þakkaði Jón Atli öllum þeim sem komið hefðu að þessu máli bæði innan og utan Háskóla Íslands. Hann sagðist vera að taka við þessu fyrir hönd þess stóra hóps og enn fremur að mikil vinna væri fram undan til að tryggja að ráðstefnan gengi vel á árinu 2027.

Hlutverk Meet in Reykjavík - Iceland Convention Bureau er að styrkja og efla ímynd Íslands og Reykjavíkur sem eftirsóknarverðs áfangastaðar fyrir ráðstefnur, fundi, hvataferðir og alþjóðlega viðburði. Verkefnið er rekið af Íslandsstofu og unnið í samræmi við leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu, útflutningsstefnu Íslands og ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar.  
 

Sigurjóna Sverrisdóttir, Hildur Björg Bæringsdóttir, Jón Atli Benediktsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.